ALÞJÓÐA GJALDEYRISJÓÐURINN(AGS) SÝNIR VERK SÍN Á KJARVALSTÖÐUM Í SEPTEMBER.SÝNISHORN HÉR AÐ NEÐAN!

Biskupar í Argentínu skera upp herör gegn fátækt

mynd
Útigangsmenn á strætum Buenos aires.

Biskupar í Argentínu hafa skorið upp herör gegn fátækt í landinu eftir að páfinn sagði snaraukna örbirgð þar í landi hneykslanlega. Argentínskir kirkjunnar menn telja um fjörutíu prósent landsmanna lifa við fátækt sem er langt umfram það sem stjórnvöld halda fram.

Mörg þúsund Argentínumenn komu saman í Buenos Aires síðdegis í gær og báðu til Cayetano, verndardýrlings starfa og atvinnulausra. Það gerðu trúaðir kaþólikkar í landinu eftir að Benedikt páfi sextándi gerði fátækt í Argentínu að umræðuefni í ávarpi nýlega og sagði fjölgun fátækra í landinu hneyksli.

Argentína hefur verið í fjárkröggum um langt skeið og leitaði á náðir Alþjóða gjaldeyrissjóðsins seint á tíunda áratug síðustu aldar. 2001 lýsti landið sig gjaldþrota en þá voru opinberar skuldir Argentínu fimmtíu og fjögur prósent af vergri landsframleiðslu, sem er töluvert minna en talið er að skuldir Íslands séu og geti orðið. Frá 2001 var hagvöxtur í landinu í sex ár en síðan hefur sigið á ógæfuhliðina að mati sérfræðinga.

Stjórnvöld í Argentínu hafa frá áramótum talið að um fimmtán prósent þjóðarinnar, eða nærri sex milljónir Argentínumanna, búi við fátækt og það ekki breytt frá því alheimskreppan skall á í haust. Biskupar sem sjá raðir í súpueldhús þar sem þeir vinna telja að nú búi nærri fjörutíu prósent Argentínumanna við fátækt.





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Mér finnst það alltaf jafn  merkilegt þegar ekki er hlustað á fólk ( venjulegt fólk, þú og ég) heldur þurfi páfa, kónga eða eitthvað heldra fólk til að vekja fólk upp, til að sjá sannleikan, þetta er nú þegar komið til Íslands (fátæktin), það bara á en eftir að uppgötvast af einhverjum páfanum svo að fólk sjái 

Sigurveig Eysteins, 12.8.2009 kl. 13:47

2 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Hárétt hjá þér Sigurveig,þeir sem eru aldrei í kringum neina fátækt sjá heldur enga!!

Það er ekki fyrir en lýðurinn hendir þeim út úr filabeinsturnunum að þeir sjá veruleikann!!!

Konráð Ragnarsson, 13.8.2009 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband