Tækifæri fyrir safnara!!!!

Nú þegar allt bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði þurrkaður út í næstum kosningum, þá vil ég hvetja alla þá, sem áhuga hafa á því að safna skrítnum hlutum (sem líklega koma aldrei aftur), að henda ekki barmmerkjum,stefnuskrá og öðrum blöðungum sem gætu slæðst í póstkassann frá X-D.Þetta gæti bæði haft söfnunargildi í framtíðinni og orðið áminning fyrir næstu kynslóð að vera vakandi fyrir ribböldum sem vilja hrifsa til sín völd í nafni einstaklingsfrelsis(eiginhagsmunafrelsis)!

Munið að fátækir einstaklingar og fjölskyldur munu sjaldnast njóta frelsis eða tækifæra í óréttlátu og siðlausu þjóðfélagi.Tækifærin skapast þegar allir sitja við sama borð og kökunni er réttlátlega skipt!

Þú átt aldrei þurfa að líða fyrir það að þjóðareign sem allir eiga hlutdeild í, sé eyðilögð af fámennum hópi manna og kvenna sem telja sig yfir aðra hafna!

 Gefðu þér og þínum tækifæri til að blómstra í nýju þjóðfélagi og segðu nei við græðgi,klíkuskap,hagsmunarpoti,spillingu,náttúruspjöllum og óréttlátu þjóðfélagi!

Vertu á varðbergi þegar einhver talar um endurlífgun á dauðum peningum!

Standið vörð um þau gildi sem máli skipta ,fjölskyldan,ættingjar,vinir og meðbræður þínir!

Lifið heil!!!

Okkar fallega land! "Margt fallegt á Íslandi!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Konráð þú tekur svo flottar myndir! Þeas. ef þú ert myndasmiðurinn.

Rut Sumarliðadóttir, 18.4.2009 kl. 12:24

2 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Já Rut mín, ég er myndasmiðurinn,allar myndir sem ég birti á bloggi mínu eru yfirleitt mínar, með fáum undartekningum.Ég þakka þér Rut mín fyrir hólið og alltaf ánægjulegt að þú skulir nennir að skoða bloggið mitt

Konráð Ragnarsson, 18.4.2009 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband